Ég kláraði 5 vikna námskeiðið í ræktinni og mér leið ofboðslega vel á meðan á því stóð. Því miður á ég erfitt með að finna tíma til að fara í ræktina og þurfti því að hætta. En um miðjan ágúst byrja ég aftur og ætla þá að fara í hádeginu.
Annars er ég byrjuð að breyta um lífsstíl. Í dag er fyrsti sælgætis/köku og sykurlausi dagurinn minn.
Ég ætla að byrja hjá Íslensku vigtarráðgjöfunum þegar þeir opna aftur eftir sumarfrí þann 11. ágúst. Til að auðvelda mér það ætla ég að taka sykurinn strax út og svo bæta ávöxtum og grænmeti inn í matarræðið mitt.
Ég er búin að gera mér grein fyrir að ég get þetta ekki ein. Ég þarf að missa nærri 40 kg og það er ekki eitthvað sem ég ræð ein við. Ég þarfnast stuðningsins og rammans sem fylgir svona prógrammi og svo þarf ég hjálpina til að læra að halda þessu þegar verkefninu er lokið.
Ég var rosalega ánægð hjá JSB og myndi helst vilja halda þar áfram, en eins og staðan er í dag finnst mér erfitt að finna tíma til að komast í ræktina fyrir eða eftir vinnu, svo DDV varð fyrir valinu.
Ég vona bara að þetta gangi vel.
Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »
Það er loksins að komast smá ró á líf mitt. Fjölskyldan öll komin heim og byrjuð að vinna eða hjá dagmömmu. Hundurinn kemur heim í dag og við því loksins öll komin til Íslands.
Ég er alsæl í vinnunni minni og nýt þess að hafa nóg að gera. Fer meira að segja stundum á kvöldin til að ná að gera eitthvað, og finnst það gaman. Ótrúlegt.
Annars er þetta að frétta af átakinu mínu og breyttum lífsstíl. Ég er búin að borða fullt af kílóum á mig í þessu “flytja-heim-aftur” ferli. Ekki að það sé nein afsökun, en svona hef ég bara verið. Ég fór á OA fund og það getur vel verið að ég geri það aftur þótt ég sé alls ekki viss um að ég sé neinn matarfíkill. Ég held að þetta séu meira svona slæmar venjur og leti hjá mér….heheh.
En ég skráði mig á 5 vikna sumarnámskeið hjá JSB og er búin að fara tvisvar sinnum. Ég verð að segja að ég er frekar mikið aum í kroppnum. Veit ekki hvernig ég verð á morgun…hehe.
En þetta er ofsalega gaman og skemmtilegar konur og góðir kennarar. Ég ætla því að taka þetta námskeið og hver veit hvað ég geri eftir það.
Ég er samt búin að setja mér markmið sem ég ÆTLA AÐ STANDA VIÐ. Ég ætla að hlaupa/skokka 10 km í Reykjavíkur maraþoninu í ágúst 2011. Hvernig líst ykukr á það?
Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »
Ég hef undanfarið verið mikið að velta málunum fyrir mér. Ég hef síðustu ár farið í margar “megranir” og ná af mér fullt af kílóum, bætt þeim á mig aftur, grennt mig aftur og bætt þeim á mig aftur. Uppi stend ég í verra formi en ég hef nokkurn tíman verið. Ég er með hangandi maga, risa bingóvöðva, öll lin og slöpp og mjög óánægð með sjálfa mig. Ég var því búin að ákveða að ég væri hætt í megrun. Ég ætlaði bara að vera dugleg að hreyfa mig og borða hollan mat.
Svo kom að sjálfsögðu dagur (í dag) þar sem ég var ofsalega þreytt og óánægð og ákvað því að ég yrði að skella mér á danska og ná af mér ca 20 kg áður en ég gæti farið að lifa lífinu.
Ég kom hingað inn til að tilkynna heiminum það að Græneygð væri komin á danska. En rétt áður en ég byrjaði að skrifa, rak ég augun í komment frá Dídí. Ég fór á síðuna hennar og las þennan póst frá henni. (Vona að það sé í lagi að ég setji hann hér inn?)
Svona virkar “alheimurinn” Ef maður er tilbúinn að taka á móti, þá fær maður það sem maður vill. Það er víst óþarfi að taka það fram að ég ætla ekki að byrja á danska….
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Ég er hér enn. Hef bara ekki verið með hugann við átakið mitt undanfarið. Hef samt verið þokkalega dugleg að hreyfa mig en annars er hugurinn bara við að flytja heim til Íslands. Mig langar samt að taka til í matarræðinu mínu og fyrsta skrefið er að hætta narti milli mála. Ég er farin að borða hafragraut í morgunmat alla virka daga og ákveða kvöldmatinn mánuð fram í tímann. En restin af deginum er í tómu tjóni hjá mér. Núna ætla ég að takast á við nartið og fyrst um sinn ætla ég að sleppa því að borða frá morgunmat til hádegis. Ég borða það góðan skammt af hafragraut að ég þarf ekkert fyrr en í hádeginu. Bara eitt lítið skref í einu. Ekkert nart milli 7-12
Skrifað í Uncategorized | 3 ummæli »
Ég ætla að setja mér markmið fyrir 2010, sem ég hef ekki gert í fjöldamörg ár.
Markmið:
1. Komast undir 79 kg á þessu ári
2. Stunda líkamsrækt allt árið
3. Flytja heim til Íslands
4. Finna mér vinnu sem ég get haft metnað fyrir
5. Setjast niður reglulega og yfirfara önnur markmið
Skrifað í Uncategorized | 1 ummæli »
Ég er hér enn og berst áfram. Það er búið að vera mikið í gangi síðustu vikur og margar ákvarðanir teknar. Við erum búin að ákveða að koma heim á klakann, eins brjálað og það hljómar, okkur langar heim.
Ég ætla því að taka mig taki núna og koma mér í sæmilegt form á næstu 3-4 mánuðunum, áður en við förum heim.
Strákurinn er að byrja hjá dagmömmu þannig að ég ætti að hafa nægan tíma til að fara í ræktina. Það eru því bara matarmálin sem ég þarf að taka í gegn.
Hvernig gengur hjá ykkur?
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Ég er hér enn, á fullu í ræktinni og að vinna í matarmálunum. Bara brjálað að gera. Flytja á milli landa og svoleiðis. ![]()
Meira síðar
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Ég var á barnalandi að lesa spjallþræðina og rakst þar á þráð þar sem umræðan var hvernig maður ætti að halda sig frá því að missa stjórnina og háma í sig mat. Þar var ein sem kallar sig “JungleDrum” sem skrifaði svar sem höfðaði rosalega vel til mín og fékk ég leyfi hennar til að birta það hér:
“Mín mesta hvatning var árangurinn,þegar ég sá töluna á viktinni lækka, fituprósentu lækka og fötin mín stækka, og mér leið svooo mikið betur, ég vildi ég ómögulega skemma það.
En það var ekki fyrr en ég hafði tekið ákvörðun um að hætta að finna afsakanir til að troða mig og einbeita mér að ástæðum til að standa mig.
Ég reyndi margt og mikið og lengi áður en það “small” eitthvað í hausnum á mér.
Engar töflur eða töfraráð, hjá mér var það spurning um að koma mér ákveðið andlegt ástand, aldrei gleyma að ávinningur af því að borða holt var meiri en skyndihamingja af ofáti/sukki – sem endaði hvort eð er með samviksubiti og vanlíðan og svo meira áti til að hugga þær tilfinningar.
Þannig var ég föst í vítahring árum saman, tugum kg of þung.
En með hugarfarsbreytingu sem varð að lífsstílsbreytingu fuku kílóin, líkamsrækt varð hluti af hverjum degi eins og að bursta tennurnar og nú er mun auðveldara að hafa stjórn á græðgisköstum.
Komn í kjörþyngd, reyndar ólétt núna, en ekki tapað mér á meðgöngunni heldur eins og óttaðist og bara heilbrigð.
Maður má bara ekki sofna á verðinum og vera meðvitaður, ekki blekkja sjálfan sig og heldur ekki brjóta sig niður þegar eitthvað klikkar, bara halda áfram!
“
Þetta fannst mér alveg frábært hjá henni og vakti mig til umhugsunar. Ég er hætt öllum kúrum og ætla að einbeita mér að hausnum á mér. Ég er hætt að tala um megranir og kíló við vini mína og fjölskyldu og ef ég þarf eitthvað að tjá mig um það, þá geri ég það hér.
Ég ætla að einbeita mér að því að borða hollt og eiga yndislegt líf. Lífið er svo miklu meira en megrun, en að sjálfsögðu er lífið betra ef maður er heilbrigður og hraustur. Ég er enn með markmið um að léttast og ætla að vera komin í 79.9 um miðjan apríl. Það eru um 15 kg. Ég á alveg að ná því með mikilli hreyfingu.
Ég lærði heilmikið á danska kúrnum og hef tileinkað mér ýmislegt þaðan, en það er ýmislegt við hann sem höfðar alls ekki til mín og ég er í stöðugri baráttu við hausinn á mér þegar ég reyni að fylgja honum. Ég ætla því að kveðja hann og þakka fyrir mig og einbeita mér að andlega hlutanum.
Skrifað í Uncategorized | 8 ummæli »
Er búin að vera í tómu tjóni um helgina…hehe. En mjög meðvitað. Drakk áfengi, borðaði smákökur og át alls konar rugl. En naut þess í botn. Vigtin sýndi það líka í morgun, 97.3kg…úffff
En í dag hef ég bara verið á léttu nótunum. Borðaði bara minn hafragraut í morgun, brauð með túnfisk og salat í hádeginu og var að fá mér smá skyr. Svo verður fiskur í kvöldmatinn og kannski ávöxtur í desert. Bara sátt
Er búin að fara í einn göngutúr í dag og ætla svo að skella mér í ræktina þegar maðurinn minn kemur heim. Hvernig væri að fara og róa svona eins og 5 km?
Ætla að kíkja smá bloggrúnt áður en litli gutti vaknar.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Hvernig er það? Einu sinni var sagt að með því að hreyfa sig með DDV matarræðinu, þá léttist maður hægar. Á þetta enn við eða var þetta bara eitthvað bull?
Ég ætla að byrja í ræktinni þegar sonur minn byrjar hjá dagmömmu í janúar og er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fylgja DDV eða bara borða hollan mat og minna af honum.
Mér finnst svolítið dýrt að ætla að borga fyrir ræktina og vigtanirnar. Æi, veit vel að ég er enn að rugla með þetta, en mér finnst rosalega erfitt að taka ákvörðun og standa við hana í matarmálunum. Allt annað stend ég 100% við…..skil þetta ekki.
pirr, pirr, pirr….
Skrifað í Uncategorized | 2 ummæli »