Ég var á barnalandi að lesa spjallþræðina og rakst þar á þráð þar sem umræðan var hvernig maður ætti að halda sig frá því að missa stjórnina og háma í sig mat. Þar var ein sem kallar sig “JungleDrum” sem skrifaði svar sem höfðaði rosalega vel til mín og fékk ég leyfi hennar til að birta það hér:
“Mín mesta hvatning var árangurinn,þegar ég sá töluna á viktinni lækka, fituprósentu lækka og fötin mín stækka, og mér leið svooo mikið betur, ég vildi ég ómögulega skemma það.
En það var ekki fyrr en ég hafði tekið ákvörðun um að hætta að finna afsakanir til að troða mig og einbeita mér að ástæðum til að standa mig.
Ég reyndi margt og mikið og lengi áður en það “small” eitthvað í hausnum á mér.
Engar töflur eða töfraráð, hjá mér var það spurning um að koma mér ákveðið andlegt ástand, aldrei gleyma að ávinningur af því að borða holt var meiri en skyndihamingja af ofáti/sukki – sem endaði hvort eð er með samviksubiti og vanlíðan og svo meira áti til að hugga þær tilfinningar.
Þannig var ég föst í vítahring árum saman, tugum kg of þung.
En með hugarfarsbreytingu sem varð að lífsstílsbreytingu fuku kílóin, líkamsrækt varð hluti af hverjum degi eins og að bursta tennurnar og nú er mun auðveldara að hafa stjórn á græðgisköstum.
Komn í kjörþyngd, reyndar ólétt núna, en ekki tapað mér á meðgöngunni heldur eins og óttaðist og bara heilbrigð.
Maður má bara ekki sofna á verðinum og vera meðvitaður, ekki blekkja sjálfan sig og heldur ekki brjóta sig niður þegar eitthvað klikkar, bara halda áfram!
“
Þetta fannst mér alveg frábært hjá henni og vakti mig til umhugsunar. Ég er hætt öllum kúrum og ætla að einbeita mér að hausnum á mér. Ég er hætt að tala um megranir og kíló við vini mína og fjölskyldu og ef ég þarf eitthvað að tjá mig um það, þá geri ég það hér.
Ég ætla að einbeita mér að því að borða hollt og eiga yndislegt líf. Lífið er svo miklu meira en megrun, en að sjálfsögðu er lífið betra ef maður er heilbrigður og hraustur. Ég er enn með markmið um að léttast og ætla að vera komin í 79.9 um miðjan apríl. Það eru um 15 kg. Ég á alveg að ná því með mikilli hreyfingu.
Ég lærði heilmikið á danska kúrnum og hef tileinkað mér ýmislegt þaðan, en það er ýmislegt við hann sem höfðar alls ekki til mín og ég er í stöðugri baráttu við hausinn á mér þegar ég reyni að fylgja honum. Ég ætla því að kveðja hann og þakka fyrir mig og einbeita mér að andlega hlutanum.
Frábært svar! Svo mikill sannleikur í þessu.
Nákvæmlega. Alveg eins og talað úr mínu hjarta.
Gaman að skoða bloggið þitt og gangi þér vel!
Ég er rosa glöð að svarið mitt hafi höfðað til þín og pínu upp með mér
Heilinn er svo sannarlega það líffæri sem gegnir lykilatriði í þjálfun og hollum lífstíl – og það krefjndi að halda honum í formi því hann reynir oft að blekkja okkur!
Haltu áfram að vera jákvæð og ákveðin, og þú nærð takmarkinu fyrr en varir!
Þetta er svo satt, hausinn er lykillinn;) Gaman að lesa þetta sem JungleDrum segir því það var einmitt þetta sem hvatti mig mest áfram þegar ég var í mínu “ferli” – að finna fötin verða rýmri og rýmri, talan á vigtinni lækkaði og BMI gildið varð nær því að vera “rétt”, hvað manni leið vel
Finnst eins og ég hafi skrifað þetta sem jungledrum skrifaði. Þetta er nákvæmlega svona. Það tók mig nokkur ár að byrja á þessu, endalaust jójóástand með Herbalife, jú jú Herbalife virkar vel fyrir þá sem ætla að grenna sig, en maður grennist kannski of hratt, missir meiri vöðva en fitu, og svo koma kilóin aftur, það gerðist allavegana hjá mér nokkrum sinnum. Ég tók mig svo á í sept í fyrra og hef misst 13 kíló, ég æfi 5-6x í viku, alltaf kl. 5:30 á morgnana og borða hollara fæði, borða oftar og minna í einu. Hrósið frá öðrum, vellíðan sem fylgir þessu og hvað maður er allur mikið léttari á sér virkar fyrir mig. Eini mínusinn við þetta er að ég þarf að kaupa mér allt nýtt í fataskápinn, en ég höndla þann mínus.
Svo er um að gera að kaupa sér eitthvað sem þig langar í við hver 5 kílóa missir.
Ég byrjaði á að fara í átaksnámskeið, fór á 2 námskeið, en síðan hef ég farið í hina ýmsu tíma sem líkamsræktastöðin bíður uppá. Fyrst fyrir 2 mánuðum fór ég sjálf að fara í tæki í salnum og er mjög ánægð með mig. Vantar ca 5 kíló núna uppá, þetta kemur allt í rólegheitum. Að missa 300 til 600 g á viku er frábært. Gangi þér vel
Þetta er svo satt – en það er svo mikilvægt að hafa þennan gráa með í ferlinu ef maður ætlar að ná af sér “lýsinu”
Gangi þér vel
Sæl.
Flott síða hjá þér, mun kíkja oft á hana. Ég var einmitt sjálf að byrja með svona síðu.
Gangi þér vel og gleðilegt ár.
Jæja á ekki að skella sér í gírinn á nýja árinu? Skora á þig að skella inn bloggi