Það er loksins að komast smá ró á líf mitt. Fjölskyldan öll komin heim og byrjuð að vinna eða hjá dagmömmu. Hundurinn kemur heim í dag og við því loksins öll komin til Íslands.
Ég er alsæl í vinnunni minni og nýt þess að hafa nóg að gera. Fer meira að segja stundum á kvöldin til að ná að gera eitthvað, og finnst það gaman. Ótrúlegt.
Annars er þetta að frétta af átakinu mínu og breyttum lífsstíl. Ég er búin að borða fullt af kílóum á mig í þessu “flytja-heim-aftur” ferli. Ekki að það sé nein afsökun, en svona hef ég bara verið. Ég fór á OA fund og það getur vel verið að ég geri það aftur þótt ég sé alls ekki viss um að ég sé neinn matarfíkill. Ég held að þetta séu meira svona slæmar venjur og leti hjá mér….heheh.
En ég skráði mig á 5 vikna sumarnámskeið hjá JSB og er búin að fara tvisvar sinnum. Ég verð að segja að ég er frekar mikið aum í kroppnum. Veit ekki hvernig ég verð á morgun…hehe.
En þetta er ofsalega gaman og skemmtilegar konur og góðir kennarar. Ég ætla því að taka þetta námskeið og hver veit hvað ég geri eftir það.
Ég er samt búin að setja mér markmið sem ég ÆTLA AÐ STANDA VIÐ. Ég ætla að hlaupa/skokka 10 km í Reykjavíkur maraþoninu í ágúst 2011. Hvernig líst ykukr á það?
Byrjuð í ræktinni
maí 27, 2010 eftir Græneygð
Hljómar eins og plan!
Hvernig ertu að fíla JSB? Ég ætla einmitt að skella mér á svona námskeið eftir sumarið – er að skoða nokkra staði.
Hæhæ
Rakst á bloggið þitt af tilviljun og mátti til með að kvitta fyrir mig
Það er mjög gaman að lesa bloggið þitt og ég vona að þú haldir því áfram, ég varð svo inspired eftir að rúlla í gegnum nokkur svona blogg að ég ákvað að stofna mitt eigið
Þá hjálpar svo mikið að geta lesið blogg hjá einhverjum sem er að pæla í sömu hlutum og að hvetja hvor aðra. Ég vona því að það sé í lagi að ég haldi áfram að fylgjast með