Ég kláraði 5 vikna námskeiðið í ræktinni og mér leið ofboðslega vel á meðan á því stóð. Því miður á ég erfitt með að finna tíma til að fara í ræktina og þurfti því að hætta. En um miðjan ágúst byrja ég aftur og ætla þá að fara í hádeginu.
Annars er ég byrjuð að breyta um lífsstíl. Í dag er fyrsti sælgætis/köku og sykurlausi dagurinn minn.
Ég ætla að byrja hjá Íslensku vigtarráðgjöfunum þegar þeir opna aftur eftir sumarfrí þann 11. ágúst. Til að auðvelda mér það ætla ég að taka sykurinn strax út og svo bæta ávöxtum og grænmeti inn í matarræðið mitt.
Ég er búin að gera mér grein fyrir að ég get þetta ekki ein. Ég þarf að missa nærri 40 kg og það er ekki eitthvað sem ég ræð ein við. Ég þarfnast stuðningsins og rammans sem fylgir svona prógrammi og svo þarf ég hjálpina til að læra að halda þessu þegar verkefninu er lokið.
Ég var rosalega ánægð hjá JSB og myndi helst vilja halda þar áfram, en eins og staðan er í dag finnst mér erfitt að finna tíma til að komast í ræktina fyrir eða eftir vinnu, svo DDV varð fyrir valinu.
Ég vona bara að þetta gangi vel.
Allt á réttri leið
júlí 19, 2010 eftir Græneygð
Til hamingju með að hafa tekið ákvörðun um að byrja á ddv, þú sérð ekki eftir því. Svo um að gera að skoða fullt af ddv síðum og fá hugmyndir af uppskriftum
Gangi þér allt í haginn.